04maí

Ertu að gínast ?

04. maí 2008 klukkan 04:10
Rusty
Engin athugasemd
31júlí

Rusty lifir að eilífu


Jahá þið heyrðuð rétt!!
Rusty verður samkvæmt fregnum áfram á Laugarvatni næsta ár, þannig að það er ekkert að örvænta varðandi djamm!! Næsti 4. bekkur verður með hann og eina sem ég ætlast til er að Rusty verði áfram uppáhald allra sem tengjast honum djammlega séð.

Við í 5. bekk kveðjum over and out!!

kveðja Ómar Smári
31. júlí 2007 klukkan 21:08
Rusty
2 athugasemdir
19maí

Ekki vera með læti

Og ekki öskra,  er frekar þunnur. En ég er með besta þynnkubanann sem er bónusdjúsið sem Júlli flugmaður er alltaf að drekka. Það er maður sem er aldrei þunnur:P Og trefjaríkar fittnessbollur með kúmen og melónufræ.
Jæja þetta er að breytast í matreiðslutíma hjá Halldóru.
 Það var ball í Njálsbúð í gær og það klikkar ekki; þessi staður er alltaf eins og sardínudós. Hnakkarnir í Fsu buðu MLingum að djamma með sér af því að það er svo æðislegt að djamma með MLingum og það vita allir.
Ég var hinsvegar að djamma með MLingum í seinasta sinn í bili:( Ég mun sakna þeirra tíma snökt snökt.

En Rhodos er handan við hornið þar sem tanið og bjórinn bíður okkar við flugvöllinn og býður okkur velkomin, útskriftarhóp 2007. Btw útskriftin er næsta laugardag maður!!!
Maður er búinn að tæma herbergið sitt og er kominn heim.
Ég fór heim með Jóa á Rusty og það var ævintýraleg ferð. Maður kynntist Rusty á nýjan hátt og varð tengdari honum í hjartanu. Nú er Rusty hérna heima hjá mér í hlaðinu og honum líður vel. (Ef einhver er að pæla í því).    Pælið í því Yngri-bekkingar, á næsta ári verður enginn Rusty til að djamma í, nú verður gamla góða pakkhúsið við völd.

Það eru ýmsar sögur sem hef ætla ekki að láta flakka í þessu bloggi, eins og Akureyrarferðin það sem sumir fóru á kostum. Þannig að ekki halda að Rusty-menn séu ekki að gera neitt, það kemur bara ýmislegt ekki fram.
Það þarf bara að hafa samband;)

Ég kveð

Ómar  aka  Halldór  aka  Ómmi  aka  Pirri  aka  Dóri aka  Ómsi aka Dimitar  aka  Glómar aka Bebbi  aka  Ómar Pálma  aka  HEYHEY
19. maí 2007 klukkan 10:50
Rusty
5 athugasemdir
22apríl

What goes around comes around.

Sælt veri fólkið. Nú er liðinn dágóður tími síðan bloggað var seinast og er nú kominn tími til.
Mikið af vatni hefur runnið til sjós síðan seinast,
ómar er orðinn rólegur,
stefán er byrjaður að opna hurðir og halda þeim fyrir fólki sem labbar á eftir honum,
jónki er alfarið búinn að snúa sér að blóma skreytingum,
símon er byrjaður að labba niður í íþróttahús og hættur að nota vax,
jói er búinn að svíkja lit og er nú dyggur stuðnigsmaður Wigan,
maggi o  segir að subaru sé drasl og keypti sér þennan fína skoda 88´ árgerð um daginn,




james er alfarið búinn að snúa sær að klassískri kassagítartónlist og er idolið hans nú kk,
gústi er staðráðinn í því að ruslakallinn sé framtíðar djobbið og er staðráðinn í að fara þangað beint eftir stúdentinn næsta vor,
stjáni er fastur á því að hann fari í lögfræðina í haust og segir að það kosti ekki neitt.



Annars er ég sutlu slakur í endaþarm alheims (þorlákshöfn), og orðið á götunni hlómar svo að rusty sé heitur og langi í gang í vikunni.

Annars kveð ég með þessum ófeigu orðum ''Er'ða Rusty í kvöld''

Kv: Stjáni Turbo
22. apríl 2007 klukkan 05:00
Rusty
1 athugasemd
04apríl

Hó,hó,hó hreindýrin mín

Orkan er að hlaðast upp, leikritið er búið og allt gott og blessað með það. 18 mars var síðasta blogg, og á bloggmáli þýðir það: "langt síðan það var bloggað síðast".!
 Nú eru allir í páskafríi og að vinna, en ég bíð spenntur eftir að komast á Laugarvatn. Svo er bara innan skamms dimmitering og svo er útgáfa Skuggsjá sem ég mæli með. Ég er búinn að sjá 3 myndir og það er 18+ stimpill á einni:P Þannig að Skuggsjá er málið!!

En ég er búinn að heyra að Rusty sé bara rólegur á bílastæðinu að bíða eftir fólki, en hann er æstur í að djamma meira eftir páskafríið! Það verður tekið með krafti vonandi og hann spænir af stað í leit að ævintýrum!!  
Svo þarf að sýna 3. bekkingum hvar Kóngsvíti er svo hægt sé að viðhalda þeirri hefð. Þannig að næstu ár eftir útskrifina haldi áfram að vera jafnæðisleg og þau voru fyrir okkur hérna!! :D

En þetta var bara Ómar litli hinn góði að tjá sig á miðvikudagskvöldi. Hann er á leiðinni á ball í Njálsbúð og vonast til að hitta sem flesta MLinga þar!!


luuuuuuuuv ya!!!

Ómar Smári
04. apríl 2007 klukkan 20:34
Rusty
8 athugasemdir
18mars

Stórglæsilegt!!

Byrjum á árshátíðinni; ÞETTA VAR BESTA ÁRSHÁTÍÐIN Í 4 ÁR! Gott að fá að upplifa þetta áður en við útskrifumst:) Frábært dansiball svo á eftir, Heimir húsvörður er ekki aðeins góður að bösta og reka fólk í herbergin sín.. neeei hann lemur húðirnar af snilld einnig, helvíti góður!

Svo er það frumsýning Í fyrrasumar, hún gekk eins og í sögu og þetta var mikil upplifum fyrir alla, leikara og áhorfendur. Allir hvattir til að mæta á þessa sýningu sem er stórskemmtileg. Hver man ekki eftir "þetta eru nautin að baula" og "af hverju var ég að banka?". Allir muna eftir því:)

Eftir frumsýningu var haldið á ball að detta í það:P "djöfull verð ég að komast í sleik á ballinu" Ég tók ekki eftir miklu hözzli á því, en hinir strákarnir koma með slúðrið þegar þeir vakna loksins. Ég vaknaði alla vega hress og kátur með mín látalæti eins og alltaf. Það bitnaði á Magga Gunn eldsnemma í morgun.

En slúðrið má koma í comment.

Ps. Tvífari minn heitir Dimitar Berbatov og er leikmaður Tottenham. Enginn gat getraunina þannig að það fær enginn verðlaunin. Ég held þeim bara!

En i love you :)

Ómar Smári
18. mars 2007 klukkan 17:07
Rusty
7 athugasemdir
15mars

Tvífari vikunnar er á lausu

Þá er komið að hinum árlega lið Tvífari Vikunnar og hann er ekki af verri endanum þetta árið. Við erum að tala um hinn ákaflega pirrandi Ómar Smára sem er líklega þekktastur fyrir að leika lítið hlutverk í 'Í fyrrasumar..' sem er b.t.w. mesta rip-off í sögu Menntaskólans að Laugarvatni.

Hinn maðurinn er landsliðsmaður í knattspyrnu og hefur skorað yfir fimmtán mörk á þessu tímabili með liðinu sínu sem er ekki greint frá hér hvað er. Spurningin okkar til ykkar alþjóð er: Hver þessi tvífari Smára er? Í verðlaun er óvæntur glðaningur á ballinu á laugardaginn og viljum við fullt nafn.

Fyrir þær stúlkur sem hafa ekki hugmynd hver þessi knattspyrnumaður er geta þær hins vegar líka fengið óvæntan glaðning, reyndar frá Smáranum sjálfum, þar sem hann er einhleypur á ný eftir samband við Píanóleikarann.

Þess má svo til gamans geta að samkvæmt veðbönkum innan skólans er útvarpsþátturinn Insane (Stefán, Stjáni, Símon og Jón) er talinn líklegastur til þess að vinna verðlaunin 'Besti Útvarpsþátturinn' í ML.

Tvífarar vikunnar:
Ómar og tvífari hans
15. mars 2007 klukkan 17:08
Rusty
4 athugasemdir
10mars

Gott Laugardagskvöld

Jæja, ætli það sé ekki best að koma sér bara beint að efninu. 

DOLLINN 2007.

Lið okkar strákanna í 4 bekk hét Team Súludans og var Elí foringi þess.  Ragnar rafvirki og víðfrægur langhlaupari var með okkur í liði og stóð hann sig sæmilega. Lið okkar var fyrsta liðið til þess að leysa skákþraut Hilmars Braga.  Við vorum langfyrstir í mark á undan öllum öðrum.  Við lentum í 2 sæti samkvæmt stigatöflunni í íþróttahúsinu en áttum náttúrulega að vera í fyrsta sæti útaf svindli hjá liðinu sem lenti í fyrsta sæti.  Lið okkar strákanna í 4 bekk vann lið stelpnanna í 4 bekk og það er eitthvað sem við getum minnt þær á þegar þær eru að reyna að rífa kjaft. HEHE.  Stjáni leiddi lið sitt með stolti til ósigurs því hans lið fékk þann heiður að verma botnsætið. 
Nördarnir í Laninu eru búnir að hreiðra um sig í stærðfræðistofunni og eru búnir að vera þar síðan á miðvikudaginn.  Sögusagnir segja að þeir séu ekki búnir að fara í sturtu síðan þá og kúki og pissi í skúffurnar í kennarborðinu. 
Jói er enn í Danmörku og er víst búinn að eyða aleigunni í áfengi og bindi.  Einnig stundar hann að hringja í útvarp Benjamín og bulla blindfullur.
Útvarpsþáttur okkar strákanna Insane gekk framar öllu vonum.  Við gerðum símahrekk og hringdum í Möggu Lenu gamlan nemanda í ML.  Hún sagði ýmislegt um sitt persónulega líf og var sko vel hægt að hlæja að því. 
Júlli gerir ekki mikið annað þessa dagana en að fljúga flugvélum.  Orðrómurinn á Laugarvatni í dag segir að hann hafi brotlent á Fjarvistinni eftir bilun í hreyfli í dag þegar hann var að fljúga þar yfir. 
Guðni er að leika og leika...
Ómar er að leika og leika...
James er að leika og leika...
Stjáni og Stebbi elska hvorn annan alltaf janfmikið.
Kolla hallast að bokkunni og segir stjörnuspáin hennar að hún fari í meðferð 17 júní.
Elí keyrir og keyrir...

Við verðum bara í sambandi

Jón Pálmar
10. mars 2007 klukkan 22:56
Rusty
1 athugasemd
07mars

Bíllin hans Gústa

img265/1134/p3070281fd2.jpg

og..

img442/4225/p3070282qd9.jpg

TAKIÐ ÞÁTT Í KÖNNUNINNI HVAÐ YKKUR FINNST UM LITINN A ÞESSUM ANNARS ÁGÆTA BÍL!!
07. mars 2007 klukkan 18:59
Rusty
2 athugasemdir
03mars

Hvað er þetta Incubus sem allir eru að tala um?



Hér sjáum við einbeitinguna skína úr andliti hetju dagsins


Nú lágu Danir í því, Britney orðin ólétt aftur og byrjuð að safna skeggi. En annars góður dagur hjá Manchester mönnum. Hverjum hefði dottið það í hug að sjálfur írahundurinn John O'shea hafi ekki bara hreinsað boltanum svona svakalega flott upp í þaknet Liverpool marksins í dag? Reina lá bara á jörðinni eins og skotinn hundur og átti ekki orð.
Annars vorum við rólegir í vera hvergi í dag í Gústahúsi ásamt góðum félögum. Slöppuðum af og fengum okkur nokkra öllera og kíktum í heita pottinn sem var óþekkur. Garðslangan Anaconda lá þarna hangandi ofan í pottinn og réðst á Jónka P með tilheyrandi öskrum og brunasárum og getur maðurinn vart staðið í fótinn fyrir blöðrum. Stjáni týndi hitamælinum sem fór á flakk en ekki langt, því hann var bara fyrir aftan eyrað á honum allan tímann. Jóhann Gunnar var þarna bara rólegur undir regnhlífinni og var vel loðinn á bringunni eins og algjör Fabíó.
En viti menn, þá dró ský fyrir sólu. Hver annar en Magnús Orri eða Morri eins og við köllum hann kom askvaðandi út með látum og hrifsaði af honum regnhlífina og sagði honum að halda kjafti ellegar yrði hann illa barinn.
Húseigandinn í Hveragerði er aldeilis með veskið í rassvasanum. (pabbi)
Gústaf er búinn að endurnýja Corollukostinn. Hann er kominn á gay-blue-pride-joy-gayness-fun-somekind of colour Corolla árgerð 2005. Hann er sem sagt ljósblár ef enginn skildi hvað við vorum að fara þarna að ofan. Við kjósum að kalla bílinn höfrunginn(dolphin) eða Flaming.
Jómfrúarferðin var farin í kveld í Reykjavík á einhverja Incubus tónleika sem allir eru að tala um en enginn veit hvað er. Við skulum vona að kagginn skili honum og fylgifiskum heilum heim.
Rusty er rólegur uppi á Laugarvatni en ekki er planið að láta hann sofna. Því margt er að halda uppá næstu vikur og mánuði.
Jóhann G er á árlegri árshátíð hestamannafélagsins Geysis í Hvolnum á Hvolsvelli. Við vonum að hann skemmti sér vel við drykkju og járningar þar.
Ómar og Júlíus Hönkmeister eru að passa vistina í þessum töluðu orðum. (á sandi byggði heimskur maður hús)
Bráðum kemur Gústaf heim og þá er hægt að opna húsið fyrir öllum þessum gestum sem eru búnir að vera að berja á dyrnar og heimta að koma inn í parteiið. Þá verða okkars glaðir.
Glory Glory Manutd

Baráttukveðjur frá bloggurum kveldsins
Stjáni Turbo og Jónki P
03. mars 2007 klukkan 23:48
Rusty
2 athugasemdir

Gústi svali að blogga

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hver er sætastur?